Skilmálar og skilyrði
Upplýsingar um seljanda:
Seljandi er PK ehf. kt 690922-1770, VSK númer 146283
Verð á vöru og sendingarkostnaður:
PROKID áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og hætta við pöntun ef verð í vefverslun eru rangt skráð. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Ölllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar og Dropp eða Flytjanda og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Flytjanda / Drop um afhendingu vörunnar. PROKID ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá PROKID til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Vöruskil og skipti:
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt (gildir ekki um útsöluvöru). Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er vara endurgreidd að fullu. Kaupandi þarf að standa straum af kostnaði við að koma vöru til PROKID og sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ekki er hægt að skila né skipta vöru sem ekki lengur er til sölu.
Hafi vara ekki verið sótt innan tveggja mánaða eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu og verður ekki endurgreidd.
Gölluð vara:
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum bent á að hafa samband við okkur á netfangið prokid@prokid.is
Sé gallaðri vöru skilað er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir PROKID meðfylgjandi sendingarkostnað, eða vara er endurgreidd sé þess krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Greiðsla:
Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:
Með greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Saltpay. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.
Millifærslu, inn á reikning 0370-26-690903 kt 690922-1770. Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur borist. Greiðsla ásamt kvittun á netfangið prokid@prokid.is þarf að berast innan 24 klukkutíma frá pöntun.
Persónuupplýsingar:
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um. PROKID ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.